Fara beint í efni
Bilanavakt allan sólarhringinn: 893 1905
SKVSKAGAFJARÐARVEITUR

Hitaveita og vatnsveita Skagfirðinga

Skagafjarðarveitur eru í eigu Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Hlutverk okkar er að tryggja viðskiptavinum hámarks afhendingaröryggi á hagstæðu verði og að afhent vara sé í samræmi við skilgreindar kröfur.

Gufa stígur upp af jarðhitasvæði í grónu landi

Persónuleg þjónusta í heimabyggð

Stefna Skagafjarðarveitna er hátt þjónustustig sem uppfyllir kröfur viðskiptavina um gæði og persónulega þjónustu. Starfsfólkið þekkir kerfið og svæðið, frá dælustöðinni á Sauðárkróki út í Fljót og fram í Tungusveit.

Hitaveitan nýtir jarðhita á nokkrum svæðum í firðinum, þar á meðal á Borgarmýrum og í Reykjarhóli við Varmahlíð. Vatnsveitan sækir neysluvatn í lindir og vatnsból í fjöllunum.

Saga hitaveitunnar

Frá kartöflurækt við Reykjarhól til einnar öflugustu lághitaveitu landsins.

  1. 1904

    Garðyrkjufélag Seyluhrepps stofnað til að rækta kartöflur við jarðhitann á Reykjarhóli.

  2. 1939

    Sundlaugin í Varmahlíð vígð 27. ágúst, 33 metra löng og hituð með jarðhita úr Reykjarhólnum.

  3. 1949

    Borað í hólma í Áshildarholtsvatni. Upp koma um 23 lítrar á sekúndu af 70 gráðu heitu vatni.

  4. 1953

    Fyrsta húsið á Sauðárkróki fær heitt vatn 1. febrúar, Bárustígur 1.

  5. 1965

    Borun hefst á Borgarmýrum. Þrjár holur gefa 140 l/sek í sjálfrennsli, eitt mesta sjálfrennsli á lághitasvæði landsins.

  6. 1972

    Hitaveita Varmahlíðar stofnuð eftir borun austan í Reykjarhólnum.

  7. 1997

    Hitaveita Seyluhrepps og Hitaveita Sauðárkróks sameinaðar í Hitaveitu Skagafjarðar.

  8. 1999

    Lokið við lagningu hitaveitu milli Sauðárkróks og Varmahlíðar.

Starfsfólk