Rof á þjónustu
Hér birtast lokanir vegna viðhalds, framkvæmdir og bilanir. Ef vatnið fer af hjá þér og ekkert er skráð hér, hringdu í 455 6200 eða í bilanavaktina 893 1905 utan opnunartíma.
- Heitt vatn
Notendur hitaveitu frá Melsgili að Birkihlíð
Lokað verður fyrir rennsli á heitu vatni kl. 9 í fyrramálið, 22. október, vegna vinnu við dreifikerfið. Búast má við vatnsleysi fram eftir degi.
Lokun á svæði: Varmahlíð
- Heitt vatn
Íbúar á veitusvæði Varmahlíðar
Truflanir verða á rennsli á heitu vatni vegna viðgerða í dælustöð Varmahlíð frá kl. 15:00 til kl. 17:00 í dag, miðvikudag 7.10.2026. Svæði sem verða fyrir truflun eru frá Varmahlíð að Brenniborg, Birkihlíð, Sæmundarhlíð, Kárastöðum, Keflavík, Hofsstaðaseli og að Uppsölum.
Framkvæmdir á svæði: Varmahlíð
- Kalt vatn
Gilstún, kalda vatnið
Vegna bilunar gæti orðið kaldavatnslaust í Gilstúni í stutta stund eftir hádegi í dag, 28. maí.
Bilun á svæði: Sauðárkrókur
- Heitt vatn
Íbúar Víðigrundar
Vegna gatnaframkvæmda má búast við lokunum og öðrum truflunum á rennsli á köldu og heitu vatni næstu vikur. Aðeins verður unnið í lögnum á dagvinnutíma á virkum dögum, milli kl. 8 og 17, og ætti því rennsli að vera ótruflað á þeim tíma sem íbúar eru mest heima. Þetta á við um alla götuna, ekki aðeins það svæði sem afgirt er hverju sinni.
Framkvæmdir á svæði: Sauðárkrókur
- Kalt vatn
Skagfirðingabraut frá Ráðhúsi að Kirkjutorgi
Vegna tengingar á brunahana við Faxatorg verður kaldavatnslaust við Skagfirðingabraut norðan Faxatorgs og u.þ.b. að Kirkjutorgi í stuttan tíma frá kl. 13.
Lokun á svæði: Sauðárkrókur
Fáðu SMS þegar lokað er fyrir vatnið hjá þér
Skráðu heimilisfang og símanúmer. Þú færð skilaboð um fyrirhugaðar lokanir og bilanir á þinni götu, ekkert annað.